Klaksvík
7°

icon-search
icon-close
No results found
icon-circle-arrow
icon-circle-arrow

Minningarorð um Heina Waag

Hjálmar Waag Árnason

Þessi fagri ungi. strákur er Heini Waag, frændi minn, vinur og sem bróðir. 

Við bjuggum í sama herbergi í seks sumur.  Það voru góðir tímar.  Eftir daginn og þegar við vorum komnir undir sæng (íslendska) fórum við saman í gegnum það sem hent hafði yfir daginn.  Oft alvarlegir en oftar hlæjandi.  Það voru góðar stundir og hnýttu okkur saman.  Sem Íslendingur talaði ég ekki fullkomna færeysku og Heini leiðrétti mig aftur og aftur.  Sennilega var þetta besti skóli minn í færeysku.  Takk Heini fyrir það.  

Heini hefði orðið 77 ára þann 4. október s.l. en náði því ekki þar sem Dauðinn sótti hann deginum áður.  Þegar dauðinnn tekur ástvini frá okkur sitjum við uppi með skarð sorgar og söknuðar.  Tilfinningin um að eitthvað verður aldrei aftur getur verið erfið.  Hvað getum við gert?  Draga upp úr minninu allt þetta góða og jákvæða úr minningum.  Og þar koma margar fallegar myndir upp og fá mann til að brosa.  Myndir úr leik í gamla bryggjaríiinum, frá Vesturvón á leið til Sörvágs, úr forsetastólinum á Bessastöðum og margar fleiri því Heini var so skemmtilegur.  Eftir standa minningar um góðan dreng.  

Góða María, börnin og abbabörnin.  Við óskum ykkur sterkrar samkennslu.  Líka til Einars og hans fjölskyldu.

Ég kveð fallega Heina með línum um kvæði eftir Jónas Hallgrímsson:

Dreymi þig ljósið – sofðu rótt.

Dreymi þig ljósið – sofðu rótt.

Hjálmar Waag Árnason, Íslandi.