Á heimasíðuni www.kr.is verður sagt at Rógvi skoraði bæði málini í sigrunum hjá KR á Grindavík leygardagin.
29. apríl 2006 | 21:39| Knattspyrnudeild
Rógvi skoraði – Kristján varði víti
Rógvi Jacobsen skoraði bæði mörk KR í 2-0 sigri á Grindavík í æfingaleik í Egilshöll. Kristján Finnbogason varði víti á 65. mínútu.
Rógvi skoraði fyrra markið á fjórðu mínútu með skalla eftir góða sendingu frá Mumma af vinstri kantinum. Marktækifærin voru fá í fyrri hálfleik en baráttan þeim mun meiri. Seinni hálfleikur var aftur fjörugri og viðburðaríkari.
Rógvi skoraði öðru sinni með skalla á 57. mínútu eftir góða sókn sem Dalibor Pauletic hóf við vítateig KR-inga. Dado lék með boltann fram að miðlínu og sendi hann út á hægri kantinn til Sigmundar. Simmi sendi boltann beint á kollinn á Rógva sem skallaði glæsilega í mark.
Litlu munaði að Rógvi setti þriðja markið á 60. mínútu eftir góðan undirbúning Mumma og Simma. Í þetta sinn sendi Simmi boltann af vinstri kantinum en Rógvi skallaði framhjá.
Grindvíkingar fengu vítaspyrnu á 65. mínútu eftir óþarfa brot í teignum þegar engin hætta steðjaði að KR-markinu. Kristján varði hins vegar fast skot Jóhanns Þórhallssonar alveg út við stöngina hægra megin.
KR-ingar voru tvisvar nálægt því að bæta við mörkum á næstu mínútum. Mummi fékk boltann vinstra megin í teignum en sendi hann fram hjá stönginni fjær. Simmi átti síðan hörku skot af löngu færi sem markvörður Grindavíkur náði að slá yfir markið.
Grindvíkingar bættu í sóknina á lokakaflanum og tvisvar reyndi verulega á Kristján Finnbogason. Á 82. mínútu varði hann langskot Eysteins Hakssonar alveg úr við stöngina hægra megin. Tilþrifin voru ekki síðri þremur mínútum síðar þegar hann sló boltann yfir markið eftir aukaspyrnu Scott Ramsey.
Leikinn dæmdi Vilhjálmur Alvar Þórarinsson en Sigurður Schram og Einar Sigurðsson voru aðstoðardómarar. Villi, sem er 21 árs, er einn af efnilegri dómurum landsins. Hann hefur í nokkur ár dæmt leiki í yngri flokkunum fyrir KR og var valinn dómari ársins í KR árið 2003. Hann hefur dæmt og verið aðstoðardómari í leikjum í neðri deildunum, VISA-bikarkeppninni og Deildabikarkeppninni en þetta var hins vegar frumraun hans í leik milli tveggja félaga úr efstu deild.
kelda:
www.kr.is




